Tólfti verzlingur vikunnar

Gleðilegan post-Væls dag kæru lesendur og fuck me hvað það var gaman í gær, more on that later! Vikan byrjaði nefnilega sem ósköp krúttleg lítil útvarpsvika en í djúpum hennar leyndist skrímsli. Þá er ég að tala um skrímsli sem lætur alla hafa gaman og skapa fullt af góðum minningum! Haha jú þetta var frábær vika enda eru útvarpsvikur dare I say bestu vikurnar. Þá vaknar Verzló og útvarpið með. Það er svo nice að rusla Verzló vaknar í tækið á meðan þú græjar þig og drullar þér í fyrsta tíma en líka að heyra allar helstu nefndir í svaaaaka hugleiðingum um heitustu 10 módelin og hverjir fara heim með hverjum á Vælinu. Ok það var orðið dálítið lúið en samt sem áður er þetta geðveik vika. Á þriðjudaginn var síðan bombað í það sem allir höfðu beðið eftir, nagandi á sér neglurnar úr stressi yfir. Im talmbout the Vælstrailer. Hann var auðvitað sýndur í Kringlubíói en þar var slegist um sæti enda enginn sem vildi missa af þessu. Og já kæru lesendur, Vælið (eins og þið tókuð kannski eftir í gær) er ekki í Hörpunni heldur í Reykjavík Studios í gufunesinu. Shi, it‘s lit anyway. TÍVÍ tók síðan Surströmming challengið í bílakjallaranum í Kringlunni og já það fór nákvæmlega eins og maður hefði haldið. Örkin kom líka með eitt svakalegasta miðstjórnarnefndarblað í geiminum shout out Örkin það eru stórir hlutir að malla þar. Svo held ég að það sé ekkert vitlaust að nefna WEEKEND WANKERS í útvarpinu á fös þar sem ég og Jón Króla ræddum framtíð VV en vorum aðallega að gera alla hlustendur þáttarins stinky rich með fjármála- og fjárfestingar ráðgjöf #BrókaranefndinErSnúinAftur. En þá var komin helgi og aðeins eitt sem kemst að í huga Verzlinga... The cry!
Then it happened. Sunnudagurinn rann upp og bekkirnir fóru að stússast í allskonar dóti saman. Ohh það er svo gaman saman maður vá! Eftir það var förinni heitið upp í Gufunes og heyrðu shit, er þetta ekki bara flottasti salur á Íslandi! Jú, þetta er flottasti salur á Íslandi. Skemmtó er náttúrulega búið að vinna assið af sér að skipuleggja þetta og ég þori nú bara ekki að sjá mætingareinkunnina hjá þeim en vá vá vá hvað þau uppskáru vel. Það er ekki auðvelt að vera fyrsta nefndin síðan 17hunnaogsúrkál sem má ekki halda Vælið í Hörpunni ég verð að segja þetta var alls ekkert verra þarna upp í Gufunesi. Svo skemmdi ekki beint fyrir að öll atriðin voru sjúk og öll ljós/graphic upp á 100 sömuleiðis. Ég get samt sagt ykkur það að ég hefði ekki viljað vera dómari á þessu væli því að vá hvað þetta var jöfn keppni. En það voru auðvitað tilkynnt úrslitin á endanum og...
Í þriðja sæti var Birkir Sólnes! BS var með svakalega faglegt atriði og líklega með bestu stemninguna. Líka auka shoutout því Birkir er svona 100% Verzlingur útvarps vikunnar því shit bra. Kalvín Snær Sólnes var nefnilega í svona 10 þáttum í útvarpinu og alltaf í svaaaka hugleiðingum.
Í öðru sæti var Aldís María og vá þvílíkt gítarspil damn bruh! Það hefði líklega verið nóg fyrir hana að taka opnunar-gítarsólóið bara aftur og aftur en nei Aldís ákvað að syngja svona helvíti vel líka og veistu það var bara mjög sniðugt.
En jæja, sigurvegari Vælsins og tólfti VV 26/27 er... Svandís! Hún tók Creep með Radiohead og ég hélt að ég væri búinn að heyra þetta lag nógu oft en þetta var klárlega besta útgáfa sem ég hef heyrt. Þetta var stórkoslega gert hjá okkar konu hot damn. Hún gat glamrað á píanóið eins og hún fengi borgað fyrir það og síðan bara söng hún eins og ég veit ekki hvað líka! Ég er að segja að þetta var alveg frábært atriði semsagt. Það er því ljóst að Svandís er ekki bara með munnin fyrir neðan nefið heldur er hún líka besti söngvari Verzló. Til hamingju Swan-fairy, you won and you are Verzlingur Vikunnar.
- Óli, ritstjóri Verzlings Vikunnar











